Coopoly - Logo
Coopoly - Logo
Jón Sigurðsson: Samningaviðleitni
Prévisualiser ce livre
Jón Sigurðsson: Samningaviðleitni
Prix membre: 13,99$ (qu'est-ce que c'est?)
Prix régulier: 13,99$
   (Quantité: 1)
Disponibilité:
Ebook en format EPUB. Disponible pour téléchargement immédiat après la commande.
Éditeur:
Saga Egmont International
Protection:
Filigrane
Année de parution:
2023
ISBN-13: 9788728240502
Description:
Hér er gerð úttekt á ritstörfum Jóns, þar á meðal aðkomu hans að blaðamennsku sem hann fór ávallt leynt með. Á árum þessum lagði hann mikla stund á rannsóknir í tengslum við baráttu til fjárhagslegs sjálfstæðis Íslendinga sem síðar meir urðu grundvöllur fyrir fullveldinu. Jón lét sig einnig varða fjárkláðann sem þá dundi yfir landið og var Íslendingum mikið áhyggjuefni. Málið olli bæði spennu og sundrung sem varð til þess Jón sótti hvorki Alþingi né heimsótti Ísland í sex ár. Þegar hann loksins sneri aftur ásamt konu sinni Ingibjörgu Einarsdóttur vakti það mikla gleði meðal landsmanna.

Jón Sigurðsson I-V er ævisaga þjóðarhetju og leiðtoga Íslands í sjálfstæðisbaráttunni á 19. öld. Ævisagan var upprunalega gefin út í fimm bindum af Hinu Íslenzka Þjóðvinafélagi í Reykjavík á árunum 1929-1933. Verkið er viðamikið og gefur innsýn í afdrifaríka ævi Jóns Sigurðssonar og sjálfstæðisbaráttuna við Dani. Höfundur bókanna er Páll Eggert Ólason.

Páll Eggert Ólason (1883-1949) var íslenskur doktor og prófessor í sagnfræði. Eftir stúdentsprófið lauk hann embættisprófi í lögfræði við Háskóla Íslands og hlaut síðar doktorsnafnbót fyrir rit sitt um Jón Arason. Páll sinnti fjölbreyttum störfum í gegnum tíðina en þar má helst nefna stöðu bankastjóra Búnaðarbankans, skrifstofustjóra fjármálaráðuneytisins og bæjarfulltrúa í Reykjavíkurborg. Þekktastur er Páll þó fyrir fræða- og ritstörf sín sem skipuðu stóran sess á starfsferli hans. Hann var afkastamikill rithöfundur enda fróður um sögu Íslands og afar leikinn við heimildavinnu. Ritverk hans eru bæði yfirgripsmikil og efnisrík en meðal þeirra eru samantekt á Íslenzkum æviskrám, Ævisaga Jóns Sigurðssonar I-V og Menn og menntir siðaskiptaaldarinnar á Íslandi I-IV.
Aperçu du livre
   (Quantité: 1)